Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,20% í dag og endaði í 1829,43 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 2,71% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Regins, eða um 1,57% í viðskiptum sem hljóða upp á 272 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 22,65 krónum á hlut. Gengi bréfa Marel hækkaði þá einnig, eða um 0,99% í tæplega 605 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 254,5 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa HB Granda, eða um 0,43% í viðskiptum sem hljóða upp á 426 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 34,35 krónur. Gengi bréfa Vodafone lækkaði þá einnig, eða um 0,78% í viðskiptum sem hljóða upp á 53 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 44,55 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 2,9 miljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 1,7 milljarðar króna.