Úrvalsvísitala Kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,03% í dag og stendur nú í 1.751,52 stigum. Heildarvelta á mörkuðum nam tæpum 2,5 milljörðum, þar af var velta á hlutabréfamarkaði 1,35 milljarðar og velta á skuldabréfamarkaði ríflega 1,1 milljarður.

Gengi hlutabréfa Össurar hækkaði um 3,66% í viðskiptum dagsins, þó var velta með bréf félagsins talsvert lítil eða um 27 milljónir króna. Mest velta var með bréf Regins en gengi bréfa félagsins hækkaði um 0,5% í 572,7 milljón króna viðskiptum.

Gengi hlutabréfa Nýherja lækkaði um 3,46% í 54,9 milljón króna viðskiptum. Einnig lækkaði gengi bréfa N1 um 0,85% í 49 milljón króna viðskiptum.