Tæknirisinn Microsoft hefur játað sig sigraðann á farsímamarkaði. Á sama tíma og tilkynnt var um 59% aukningu í tekjum af iPhone símum milli ára er ljóst að Microsoft hefur ekki náð að verða að stórum spilara á farsímamarkaðnum. Aldrei hefur verið jafn mikið tap af Nokia símum.
Microsoft tilkynnti um 3,2 milljarða dollara tap eftir miklar afskriftir af farsímasölu sinni. Þetta er í kjölfar 7,5 milljarða dollara afskriftum vegna kaupa fyrirtækisins á finnska farsímafyrirtækinu í apríl 2014.
Á sama tíma í fyrra tilkynnti Microsoft um 4,6 milljarða dollara tekjur.