Á mánudag var slegið met í hvalaskoðun hjá Norðursiglingu á Húsavík en þá fóru rúmlega þúsund gestir í ferðir á vegum fyrirtækisins á einum degi. Á sama tíma er töluvert minna að gera í hvalaskoðun hjá Eldingu sem gerir út frá Reykjavík að sögn Rannveigar Grétarsdóttur, framkvæmdastjóra samkvæt frétt Vísis .

„Þetta er eins og svona fyrir þremur árum. Ég held að í flestallri afþreyingu sé minna að gera,“ segir Rannveig. „Það byrjaði eftir páska þá datt pínu úr þessu. Svo byrjaði júlí ágætlega. Þannig séð er þetta ágætis sumar. En síðasta sumar var metár.“

Norðursigling, sem var fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að hefja skipulagðar hvalaskoðunarferðir, hefur á síðustu árum slegið farþegametið á hverju ári. Fyrirtækið hefur starfað nú í 23 ár með sífellt fleiri ferðum og stækkandi flota.

„Það fóru hátt í 1.500 manns í heildina, að hinum fyrirtækjunum meðtöldum, frá Húsavík þann dag,“ segir Oddvar Haukur Árnason, flotaútgerðarstjóri Norðursiglingar, en hann segist ekki hafa búist við að slá metið í ár. „Metið okkar í fyrra var um 950 manns. Það virðist einhver stöðnun vera að eiga sér stað á markaðnum núna. Útlit er fyrir stöðnun það sem eftir er sumars og svo gæti orðið fækkun seinni hlutann í ágúst og í haust miðað við í fyrra.“

Mikið hrun

Norðursigling rekur einnig gisti- og veitingarekstur á Húsavík. „Þar er mikið hrun. Það virðist sem fólk sé frekar að njóta afþreyingar á svæðinu en sparar við sig í mat, kaupir í matvöruverslunum og það gistir ekki á Húsavík,“ segir Oddvar.

„Það verður allavega ekki hrun í hvalaskoðun eins og í veitinga- og gistigeiranum. Þegar fólk er komið hingað norður er það þessi afþreying sem það er að leita að, en við gerum ráð fyrir fækkun á næsta ári.“

Oddur segir að þar hafi mest áhrif sterkt gengi krónunnar. „Fólk stoppar skemur á Íslandi. Það er nógu erfitt að fá fólk inn á Norðurlandið, svo þarf að fá það af þjóðveginum inn til Húsavíkur,“ segir Oddur. „Því skemur sem fólk stoppar því minni tíma hefur það til þess að skoða fleiri staði sem eru lengra frá. Við höfum eðlilega áhyggjur af þessum hlutum.“