Óháður kunnáttumaður sem skipaður var til að meta skilyrði í sátt milli Haga og Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Haga á Olíuverzlun Íslands hf. og DGV ehf. hefur nú skilað inn áliti sínu. Í því segir að báðir kaupendur uppfylli öll skilyrði sáttarinnar og séu þar með hæfir kaupendur eignanna.

Þann 11. september síðastliðinn var undirrituð sátt milli Haga hf. og Samkeppniseftirlitsins um skilyrði fyrir kaupum Haga á Olíuverzlun Íslands hf. og fasteignafélaginu DGV ehf. en meðal skilyrða var að samrunaaðilar seldu tilteknar verslanir og eldsneytisstöðvar. Við undirritun sáttarinnar höfðu Hagar undirritað kaupsamninga um allar þær eignir sem selja skyldi samkvæmt sáttinni.

Nú liggur fyrir Samkeppniseftirlitinu að meta umrædda kaupendur en vonir Haga standa sem fyrr til þess að því hæfnismati verði lokið í síðasta lagi um miðjan nóvember.