Teikniforritið Paint mun ekki verða í næstu uppfærslu á Windows-stýrikerfinu. Nýjasta uppfærsla á Windows 10 ber nafnið Autumn . Paint hefur fylgt Windows frá árinu 1985 eða í 32 ár. Eftirfari Paint, Paint 3D verður aðgengilegt í nýja stýrikerfinu. Greint er frá þessu í frétt BBC.

Margir Íslendingar kannast eflaust við teikniforritið fræga, og hafa eflaust margir notað það bæti til gamans og til gagns. Paint 3D forritið er nýmóðins útgáfa þar sem hægt er að teikna í þrívídd.

Meðfylgjandi er paint-listaverk blaðamanns.

Paint listaverk blaðamanns
Paint listaverk blaðamanns