Mikil aukning var í farþegarflutningum WOW air í september en um 70% aukning er frá september á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Það sem af er ári hefur WOW ari flutt 545 þúsund farþega til og frá landinu en það er 38% aukning frá sama tímabili í fyrra, en félagið flutti um 74 þúsund farþega í september.