Hlutabréf í Icelandair Group hafa hækkað um 5,02% í dag í rúmlega 2 milljarða króna viðskiptum.

Verð á hlut stendur í 27,20 kr. Úrvalsvísitalan hefur einnig hækkað um 1,79% í dag.

Hagnaður Icelandair fyrir árið 2015 jókst um 67% í fyrra. Félagið flaug með 484 þúsund farþega í seinasta mánuði.