Tekjur í fiskeldi námu rúmum 19 milljörðum árið 2017 og hafa aukist mikið á undanförnum árum. Hagstofan greinir frá.

Framleidd voru 19 þúsund tonn í fiskeldi á Íslandi árið 2018 og þar af var framleiðslan í laxeldi um 13,5 þúsund tonn. Framleiðslan hefur nær fjórfaldast á síðasta áratug, en dróst þó saman um 1,8 þúsund tonn árið 2018 samanborið við 2017.

„Magn slátraðs eldisfisks hefur næstum fjórfaldast á síðustu 10 árum og nam rúmum 19 þúsund tonnum árið 2018. Mest aukning hefur orðið í laxeldi sem fer úr 292 tonnum árið 2008 í tæp 13,5 þúsund tonn árið 2018. Bleikjueldi hefur verið stöðugra yfir tímabilið en tæpum 5 þúsund tonnum var slátrað á síðasta ári samanborið við 3,1 þúsund tonn árið 2008,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.

„Mikil fjárfesting hefur verið í greininni á síðustu árum en þrátt fyrir það er eiginfjárhlutfall sterkt, eða um 51% árið 2017. Árið 2017 voru 435 launþegar hjá fiskeldisfyrirtækjum. Samhliða auknum umsvifum hefur útflutningsverðmæti fiskeldisafurða aukist mikið og nam 13,1 milljarði árið 2018. Uppistaðan í fiskeldinu voru lax og bleikja, en árið 2018 voru framleidd 13,5 þúsund tonn af eldislaxi og tæp 5 þúsund tonn af bleikju. Samkvæmt Eurostat, Hagstofu Evrópusambandsins, var Ísland í fjórða sæti yfir Evrópulönd sem framleiða eldislax árið 2016 og hér var framleitt mest magn af bleikju.“

„Heildarútflutningsverðmæti eldisfisks hefur nær sjöfaldast á síðustu 10 árum, úr tæpum tveim milljörðum króna árið 2008 í 13,7 milljarða króna árið 2017. Samkvæmt bráðabirgðatölum utanríkisverslunar fyrir árið 2018 lækkaði verðmæti útfluttra afurða um tæpar 700 milljónir á milli ára. Árið 2018 var 95,5% af eldislaxi fluttur út heill, ýmist ferskur eða frosinn, en 4,2% af útflutningnum voru flök og 0,3% lifandi fiskar eða seiði. Af útfluttum silungi árið 2018 voru 55,3% flök og 44,7% heill.“

„Útflutningur á laxi árið 2017 var aðallega til Bandaríkjanna, Bretlands, Danmerkur, Hollands og Þýskalands. Bleikja hefur aðallega verið flutt út til Bandaríkjanna, Japan, Póllands og Þýskalands. Árið 2016 var Ísland var í 4 sæti yfir Evrópulönd sem framleiða mest af eldislaxi. Hins vegar var eldi á bleikju árið 2016 hvergi meira í Evrópu en á Íslandi.“