Knattspyrnusamband Íslands fær að líkindum ríflega milljarð króna, takist karlalandsliðinu að tryggja sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins í Rússlandi árið 2018. Þá fást enn frekari greiðslur fyrir árangur á mótinu.
Lokaleikir Íslands í undankeppni mótsins fara fram á föstudag og mánudag þegar Ísland leikur gegn Tyrklandi í Tyrklandi og Kósóvó á Laugardalsvellinum. Séu önnur úrslit Íslandi hagstæð getur liðið tryggt sér fyrsta sæti í riðlsins og komast þar með beint í lokakeppnina.
FIFA hefur ekki enn gefið út hvernig verðlaunaféð skiptist nákvæmlega milli liða en verði það í sömu hlutföllum og á heimsmeistaramótinu árið 2014 þá mun verðlaunafé liðanna sem detta út í riðlakeppninni nema tæplega 9 milljónum dollara eða um 950 milljónum króna.
Auk þess stefnur FIFA á að greiða 48 milljónir dollara í undirbúningskostnað til þátttökuþjóðanna 32, eða 1,5 milljón dollara á hvert lið, sem samsvarar 160 milljónum króna. Auk þess er gert ráð fyrir 40 milljónum dollara frá FIFA í uppihald liðanna í Rússlandi, sem samsvarar að meðaltali 1,25 milljónum dollara á lið eða um 134 milljónum króna.
Takist Íslandi að tryggja sér sæti á mótinu fá leikmenn og þjálfarar hluta ágóðans í formi árangursgreiðslna. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins verður skipting verðlaunafésins milli leikmanna og KSÍ áþekk og á Evrópumótinu en þá fengu leikmenn ríflega 40% af heildarverðlaunafénu.
LEIÐRÉTTING : Í Viðskiptablaðinu, prentuðu útgáfunni, kemur fram að Aron Einar Gunnarsson fyrirliði, sem er tæpur vegna meiðsla, verði ekki í leikmannahópnum í komandi landsleikjum. Það er ekki rétt og biðst Viðskiptablaðið velvirðingar á mistökunum.
Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér . Meðal annars efnis í blaðinu er:
- Skúli Mogensen úttalar sig um módel samkeppnisaðila Wow Air
- Vaxtalækkun Seðlabankans kom markaðnum á óvart
- Sérstaða ríkisstarfsmanna í launakjörum
- Viðtal við David Friedman um lærdóm fyrirtækja í dag af lögum þjóðveldistímans
- Kerfistregðuna sem geti hindrað þátttöku Íslands í fjórðu iðnbyltingunni
- Farið er ítarlega ofan í saumana á fjármálum stjórnmálaflokkanna
- Valdimar Ármann, forstjóri Gamma er í ítarlegu viðtali
- Skoðaðir eru möguleikar Katalóníu til að standa sjálfstæðir
- Rætt er um hvaða bækur áhrifafólk í íslensku viðskiptalífi lásu í sumar
- Nýjar lausnir í ráðningarmálum fyrirtækja
- Framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Árnasona segir frá nýja starfinu
- Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs, sem fjallar um breytingar í hinu pólítíska landslagi
- Óðinn skrifar um launamál