Útgjöld til rannsókna og þróunar, R&Þ árið 2016 mældist 2,08% af vergri landsframleiðslu á Íslandi að því er Hagstofan greinir frá. Er það lækkun frá árinu 2015 þegar þetta hlutfall var 2,17%.

Nýútgefnar bráðabirgðatölur Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, leiða í ljós sambærilegar sveiflur á milli ára í Skandinavíu þar sem útgjöld til R&Þ lækka úr 2,9% í 2,75% í Finnlandi, úr 2,96% í 2,87% í Danmörku, en einungis úr 3,27% í 3,25% í Svíþjóð.

Í Noregi hækkuðu útgjöldin hinsvegar úr 1,93% í 2,04% af vergri landsframleiðslu á milli ára. Ísland er áfram yfir meðaltali Evrópusambandsins sem er 2,03%, óbreytt á milli ára.