Fisk Seafood keypti í gær 66% hlut í útgerðarfélaginu Farsæli hf. Fisk Seafood átti fyrir 44% í Farsæll hf. og hefur því eignast allt hlutafé í félaginu.

Farsæll hf. hefur rekið útgerð í Grundarfirði frá því 1936 en vegna lítilla aflaheimilda hafa rekstrarskilyrði verið erfið síðustu ár og sýnilegt að þörf var á breytingum til þess að efla starfsemi félagsins.

Fisk Seafood ráðgerir að færa varanlegar aflaheimildir á Farsæl fyrir komandi fiskveiðiár og efla þar með útgerðina á staðnum. Fisk Seafood hefur rekið fiskvinnslu í Grundarfirði frá 1992 og eftir þessi viðskipti munu rúm 20% af heildarveltu Fisk Seafood fara fram í Grundarfirði af því er fram kemur á vef Grundarfjarðarbæjar.