Dregið hefur verulega úr afgangi á vöru- og þjónustuviðskiptum gagnvart útlöndum á síðustu árum og má það meðal annars rekja til styrkingar á krónunni. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans .

Jöfnuður vöru- og þjónustuviðskipta við útlönd á fyrri hluta ársins var jákvæður um 12,8 milljarða króna. Þetta er minnsti afgangur af utanríkisviðskiptum síðan árið 2008 þegar halli mældist upp á 46,3 milljarða króna. á sama tímabili. Afgangurinn á fyrri árshelmingi 2017 nam 23,2 milljarðar króna og dróst því saman um 10,5 milljarða milli ára. Þetta er þriðja árið í röð sem afgangurinn á fyrri helmingi ársins dregst saman milli ára, en hann nam 74,5 milljörðum árið 2015 sem þá var mesti afgangurinn síðan árið 2010.

Mikill afgangur af þjónustuviðskiptum

Enn mælist töluverður afgangur á þjónustujöfnuði og er þetta þriðji mesti afgangur á þjónustujöfnuði á fyrri árshelmingi. Afgangurinn nam 90 milljarðar króna til en til samanburðar nam hann 104 milljarða króna á sama í fyrra og 93 milljarða króna árið 2016.

Árið í ár var það 12. í röðinni sem afgangur mælist á þjónustujöfnuði á fyrri árshelmingi, en síðast mældist halli árið 2006 og nam hann 12 milljörðum króna halli á vöruskiptum nam 77 milljörðum á fyrri árshelmingi, sem er heldur minni halli en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 80 milljarða en meiri halli en árið 2016 þegar hann nam 66 milljarða Þetta er sjöunda árið í röð sem halli mælist á vöruskiptum gagnvart útlöndum á fyrri árshelmingi.