Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins árið 2012, hélt langa ræðu nú undir kvöld og gagnrýndi Donald Trump harkalega.

Romney sagði í ræðunni að Trump hefði ekkert viðskiptavit. Hann hafi erft mikla peninga en komist af eigin rammleik til álna.

Romney nefndi ótal fyrirtæki sem hefðu farið á hausinn. Má þar nefna Trump Airlines, Trump University, Trump Magazine, Trump Vodka, Trump Steaks og Trump Morgages.

Donald Trump var ekki lengi að svara fyrir sig.

Hér má sjá ræður Romney og Trump í dag.