Móberg ehf. hefur gengið frá kaupum á fyrirtækjunum Hópkaup og Leit.is, sem áður var í eigu DCG. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Stefna okkar er að þróa 3 – 6 ný fyrirtæki á hverju ári og þessi kaup eru liður í því. Okkar markmið er að þróa lausnir og þjónustu sem hreyfa við markaðnum og skapa ávinning fyrir almenning,“ segir Skorri Rafn Rafnsson, forstjóri Móbergs.

Móberg var stofnað árið 2012 og á og rekur Netgíró, Bland, 433.is, Sportið, Wedo og Móa Media. Nú bætast Hópkaup og Leit.is í hópinn.

„Ég er mjög ánægður með kaupin á þessum fyrirtækjum og þau renna styrkri stoð undir þá stefnu okkar að verða leiðandi á þessum markaði innan fimm ára,“ segir Skorri Rafn.