Útgáfufélagið Myllusetur ehf. hefur keypt viðskiptatímaritið Frjálsa verslun. Auk þess að gefa út tímarit hefur Frjáls verslun gefið út bók um 300 stærstu fyrirtæki landsins. Þessa dagana er unnið að þeirri útgáfu og mun bókin koma út í næsta mánuði. Framtíðarútgáfa Frjálsrar verslunar er í mótun enda tiltölulega stutt síðan Myllusetur gekk frá kaupunum.

Myllusetur gefur út Viðskiptablaðið og fjölda sérblaða sem því tengjast. Í Viðskiptablaðinu er lögð áhersla á fréttir úr viðskiptalífinu og umfjöllun um efnahags- og þjóðmál. Auk frétta eru í blaðinu fjölbreytt viðtöl, úttektir og pistlar. Undir merkjum Viðskiptablaðsins eru einnig gefin út tvö tímarit á hverju ári en það eru Áramót og Frumkvöðlar.

Myllusetur gefur einnig út Fiskifréttir, sem er sérblað um hafttengd málefni. Undir merkjum Fiskifrétta eru gefið út eitt veglegt tímarit á haustmánuðum. Þá kemur sérstakt Kvótablað út í upphafi hvers fiskveiðiárs og bókin Íslenska sjómannaalmanakið er gefin út í lok hvers árs. Auk þess að gefa út prentmiðla heldur Myllusetur úti vefmiðlunum  vb.is og fiskifréttir.is.