Opinn umræðufundur Litla Íslands, sem er vettvangur á vegum SA, fór fram á dögunum. Á fundinum var rætt um mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja og yfirstandandi kjaraviðræður. Yfirskrift fundarins var „Geta litlu fyrirtækin hækkað kaupið?"
Sigmar Vilhjálmsson atvinnurekandi var fundarstjóri og meðal þeirra sem sögðu sögur af rekstri fyrirtækja sinna voru Brynja Brynjarsdóttir, eigandi Hraunsnefs sveitahótels, Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar, og Hrefna Björk Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Rok restaurant. Þá fjallaði Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðar, um mikilvægi lítilla fyrirtækja.
Guðmundur Gunnarsson, bæjarstjóri Ísafjarðar.
Gunnar Valur Sveinsson, verkefnastjóri hjá Samtökum ferðaþjónustunnar
Eva Hlín Dereksdóttir, framkvæmdastjóri Raftákns verkfræðistofu, hélt erindi á fundinum.
Ólafur Stolzenwald, prentsmiðjustjóri GuðjónÓ.
Brynja Brynjarsdóttir, eigandi Hraunsnefs sveitahótels.
Helga Ásta Ólafsdóttir, eigandi og skólastjóri Danskompaní.
Sara Dögg Svanhildardóttir, skrifstofustjóri Samtaka verslunar og þjónustu
Ómar Pálmason, framkvæmdastjóri Aðalskoðunar.