Samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í októbermánuði fóru um 158 þúsund erlendir ferðamenn fóru frá landinu eða 59 þúsund fleiri en í október á síðasta ári. Aukningin nemur 59,7% milli ára.

Frá árinu 2010 hefur fjöldi ferðamanna ríflega fjórfaldast en mest hefur þó aukningin verið síðustu tvö ár þegar fjöldinn hefur meira en tvöfaldast. Heildarfjöldi ferðamanna frá áramótum er um 1,5 milljón eða 36,2% fleiri miðað við fjölda ferðamanna á tímabilinu janúar til október árið 2015.

Bandaríkjamenn og Bretar tveir af hverjum fimm ferðamönnum

Um 74% ferðamanna í nýliðnum október voru af tíu þjóðernum. Bandaríkjamenn voru fjölmennastir eða 21,9% af heildarfjölda og Bretar næst fjölmennastir eða 19,7% af heild.

Þar á eftir fylgdu Kanadamenn, sem náðu 6,3%, Þjóðverjar sem voru 6,0%, Kínverjar sem voru 4,1%, Norðmenn sem voru 3,7%, Danir sem voru 3,4%, Frakkar sem voru 3,4%, Svíar sem voru 3,0% og Hollendingar sem voru í tíunda sæti með 2,2%.

Bandaríkjamönnum fjölgaði mest

Bandaríkjamönnum fjölgaði langmest milli ára í október eða um 18.600 manns og voru þeir meira en tvöfalt fleiri í ár en í fyrra.

Bretum fjölgaði um sjö þúsund manns í október sem er um 20% aukning frá því í fyrra, Kanadamönnum um 6.400 sem er tæplega þreföldun frá því í fyrra og Þjóðverjum um 3.700 sem er um 63,9% aukning frá því í fyrra. Þessar fjórar þjóðir báru uppi 60,3% af aukningu ferðamanna milli ára í október.

Fjöldinn frá Norður Ameríku hefur meira en áttfaldast

Þegar litið er til fjölda ferðamanna í nýliðnum októbermánuði má sjá verulega fjölgun frá árinu 2010 eða ríflega fjórfalda aukningu.

Fjöldi ferðamanna frá Norður Ameríku hefur meira en áttfaldast, fjöldi Breta nærri fimmfaldast, fjöldi ferðamanna frá Mið- og Suður Evrópu meira en fjórfaldast og fjöldi ferðamanna sem lenda í hópnum ,,annað“ tæplega sexfaldast. Norðurlandabúum hefur hins vegar fjölgað minna en þeir hafa nærri tvöfaldast á tímabilinu 2010-2016.

Hlutfall íbúa Norður Ameríku hækkar en Norðurlandabúa lækkar

Samsetning ferðamanna hefur breyst nokkuð frá árinu 2010 eins og sjá má af myndinni hér til hliðar. Í október síðastliðnum voru Norðurlandabúar 11,9% ferðamanna en hlutfall þeirra af heild hefur lækkað verulega síðustu ár.

Hlutdeild ferðamanna frá Norður Ameríku hefur hins vegar farið vaxandi og hið sama má segja um hlutdeild þeirra sem lenda í hópnum ,,annað“, samkvæmt tölum Ferðamaálastofu.

Ferðamenn frá Norður Ameríku voru 15,7% af heild árið 2010 en voru orðnir 28,2% árið 2016 og hlutdeild þeirra sem falla undir ,,annað“ voru 17,8% af heild árið 2010 en var komin í 24,5% árið 2016. Hlutdeild Breta og Mið- og S-Evrópubúa hefur verið á líku róli á tímabilinu 2010 til 2016.

Ferðum Íslendinga fjölgar

Um 50 þúsund Íslendingar fóru utan í október eða 5.300 fleiri en í október árið 2015. Um er að ræða 11,9% fleiri brottfarir en árið 2015.