Sala á nýjum bílum í september í ár var 28,9% meiri en í sama mánuði í fyrra. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá bílgreinasambandinu.

Alls voru skráðir 1.027 nýir fólksbílar í mánuðinum en á sama tíma í fyrra voru þeir 797. Á tímabilinu frá 1. janúar til 30. september voru 15.945 fólksbílar nýskráðir hér á landi, sem er 37,6% aukning frá fyrra ári.

Aukningin er aðallega í sölu til einstaklinga og fyrirtækja, en bílaleigur halda svipuðu hlutfalli og í fyrra, eða um 40% af nýskráðum fólksbílum.