Ísland og Noregur munu eiga náið samstarf um fyrirhugaða úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu. Þetta var niðurstaða fundar utanríkisráðherra og Frank Bakke-Jensen, EES- og Evrópumálaráðherra Noregs, í Reykjavík í gær. Á fundinum lagði utanríkisráðherra áherslu á að mikilvægi þess að EFTA-ríkin myndu starfa náið saman að því að tryggja sem best viðskiptakjör við Bretland eftir útgöngu þess úr Evrópusambandinu. Unnið verður að nánari útfærslu á samstarfi landanna sem ráðherrarnir taka til frekari skoðunar í marsmánuði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Utanríkisráðuneytinu.

Á fundinum ákváðu ráðherrarnir einnig að styrkja samstarf Íslands og Noregs um framkvæmd EES-samningsins og ítrekuðu markmið ríkjanna tveggja að draga úr svonefndum upptökuhalla í EES-samstarfinu. Ráðherrarnir ákveðu ennfremur að Ísland og Noregur myndu taka höndum saman um að taka virkari þátt í mótun EES-löggjafar. Ráðherrarnir hvöttu til aukins samstarfs Alþingis og norska Stórþingsins um EES-mál, m.a. til að stuðla að aukinni þátttöku þingmanna við mótun EES-löggjafar.

„Ráðherrarnir voru einnig sammála um að norrænt samstarf væri sífellt mikilvægara, bæði innan Evrópu sem og í alþjóðamálum en  Franke Bekke-Jensen er einnig samstarfsráðherra Norðurlandanna í norsku ríkisstjórninni en Noregur fer með formennsku í norrænu ráðherranefndinni í ár. Í kjölfar fundarins snæddu ráðherrarnir hádegisverð í boði utanríkisráðherra og tók Kristján Þór Júlíusson, samstarfsráðherra Norðurlandanna, einnig þátt í hádegisverðinum,“ segir í lokum fréttatilkynningarinnar.