Kristófer Oliversson, forstjóri Center Hotels, áætlar að rösklega 20 milljarðar króna fari um svarta hagkerfið vegna gististarfsemi í miðborg Reykjavíkur.
„Þetta er orðið umfangsmikið neðanjarðarhagkerfi sem mokar inn peningum,“ segir Kristófer í Morgunblaðinu í dag, en hann rekur sex hótel í miðbænum.
Hörð samkeppni
Segist hann vera í harðri samkeppni við óskráðan rekstur sem geri stöðuna ójafna og miðar hann við að um 6.000 herbergi séu í þeim um 3.000 íbúðum í miðborginni sem leigðar séu út.
Áætluð nýting á þeim ætti að skila 1,5 milljónum gistinátta, sem ætti að gefa 21,5 milljarða króna í heildartekjur.
Segir hann að starfsemi þessari ætti að fylgja eðlilegar greiðslur svo sem virðisaukaskattur, tekjuskattur, tryggingagjald, fasteignaskattar og fleira slíkt.
Þessir peningar skili sér ekki í sameiginlega sjóði nema að hluta og vill hann að tökum verði náð á óskráðri starfsemi. Jafnframt segir hann hækkun gistináttagjalds vafasama hugmynd.