Arnar Guðmundsson hefur verið skipaður formaður nefndar um stefnurmörkun ríkisins í auðlindamálum. Þann 31. maí sl. samþykkti ríkisstjórn Íslands sameiginlega tillögu forsætisráðherra og fjármálaráðherra um að skipa nefnd til að setja fram tillögur um almenna stefnu sem lögð verði til grundvallar gjaldtöku fyrir nýtingu á auðlindum þjóðarinnar og annarra takmarkaðra gæða, umsýslu þessara réttinda og meðferð tekna sem hún skapar, sbr. samþykktir um stofnun Auðlindasjóðs í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og áætluninni Ísland 2020.

Nefndina Skipa:

Arnar Guðmundsson, formaður, tilnefndur af forsætisráðherra
Indriði H. Þorláksson, tilnefndur af fjármálaráðherra
Svanfríður Jónasdóttir, tilnefnd af efnahags- og viðskiptaráðherra
Gunnar Tryggvason, tilnefndur af iðnaðarráðherra
Bjarni Harðarson, tilnefndur af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af umhverfisráðherra.

Hlutverk nefndarinnar er í fyrsta lagi að setja fram almenna og heildstæða stefnumörkun varðandi ráðstöfun nýtingarréttar á auðlindum og ráðstöfun ýmissa réttinda sem ríkið ræður yfir, svo sem nýtingarréttar á þjóðlendum, vatnsafli, jarðvarma, ferskvatni, fiskistofnum, fjarskiptatíðnum, námum og kolvetnum í jörðu, auk losunarheimilda, en hún þarf jafnframt að vera þannig að hægt sé að útfæra hana með sértækari hætti fyrir einstök málefnasvið. Við vinnu sína skal nefndin vinna út frá þeim forsendum að nýtingarrétti auðlinda í eigu þjóðarinnar skuli aldrei úthlutað nema tímabundið, gegn gjaldi og með gegnsæjum hætti á grundvelli jafnræðissjónarmiða.

Í öðru lagi er nefndinni ætlað að móta almenna stefnumörkun um ráðstöfun þess arðs sem hlýst af nýtingu auðlindanna og hinna takmörkuðu gæða. Skal stefnumörkunin byggja á að sú ráðstöfun sé vel skilgreind, sýnileg og skipt með réttlátum hætti.

Í þriðja lagi skal nefndin marka stefnu um umsýslu framangreindra réttinda og arðs af nýtingu þeirra. Er nefndinni ætlað að greina og leggja mat á hvort færa eigi á eina hendi innan stjórnsýslunnar, og þá eftir atvikum í ráðuneyti eða stofnun, forræði yfir og ráðstöfun þeirra auðlinda og réttinda sem hér um ræðir og fallið gætu undir Auðlindasjóð.

Nefndin skal skila skýrslu til ríkisstjórnarinnar fyrir 1. desember 2011.