Kópavogsbær hefur gert samning við framleiðendur íslenska kennsluhugbúnaðarins KeyWe um að allir nemendur og kennarar í grunnskólum Kópavogs geti notað hugbúnaðinn að því er segir í fréttatilkynningu frá bænum.

KeyWe er rafræn glósubók þar sem notandinn getur sett inn texta, myndir, myndskeið og margt fleira. Glósurnar eru settar í svokallaða kubba og myndast tengingar þeirra á milli. Hægt er að deila með öðrum notendum, kennarar geta notað KeyWe til að búa til námsverkefni fyrir nemendur og þeir geta haldið utan um námsvinnuna sína í KeyWe.

„Kópavogsbær fær með samningnum sérsniðinn skólaaðgang að KeyWe því venjulegur aðgangur er öllum opinn sem fara á keywe.is. Þessi séraðgangur auðveldar kennurum mikið lífið því hann fellur mjög vel að þeim kerfum sem verið er að nota nú þegar í skólum,“ segir Ólafur Stefánsson stofnandi KeyWe.

„Hugbúnaðurinn hefur verið prófaður í nokkrum skólum í Kópavogi undanfarin tvö ár með góðum árangri, samningurinn gefur skólunum frekari tækifæri til þróunar,“ segir Björn Gunnlaugsson verkefnastjóri spjaldtölvuinnleiðingar í Kópavogi.

Allir nemendur komnir með spjaldtölvur

Átak í breyttum kennsluháttum hefur staðið yfir í Kópavogi síðan haustið 2015 og hafa nú allir nemendur á mið- og unglingastigi fengið afhentar spjaldtölvur til að nota í skólanum sem og heima fyrir. Einnig eru allir kennarar með spjaldtölvur til afnota en nemendur á yngsta stigi geta fengið slíkar tölvur lánaðar í skólanum til að nýta í ákveðnum verkefnum. Alls eru hátt í 4.000 spjaldtölvur í notkun í grunnskólum Kópavogs.

Meðal markmiða átaksins í Kópavogi er að nám færist nær daglegum veruleika nemenda, að nemendur hafi í auknum mæli eitthvað um það að segja hvað og hvernig þeir læra, að kennsluhættir verði fjölbreyttari og nútímalegri og námið við hæfi hvers og eins nemanda.

KeyWe hugbúnaðurinn byggir einmitt á því að hver og einn sníði notkun hans að sínum þörfum og fellur því vel að breyttum kennsluháttum í Kópavogi segir í tilkynningunni.