NetApp Inc. hefur keypt Greenqloud ehf., en þetta eru fyrstu kaup Fortune 500 fyrirtækis á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki sem vitað er um. Greenqloud ehf. verður hér eftir NetApp Iceland og verður starfsemi fyrirtækisins áfram á skrifstofum þess í Reykjavík og Seattle. Markmið NetApp með kaupunum er að styrkja leiðandi stöðu sína á markaði hybrid skýjaþjónustu. „Þetta eru afar góðar fréttir fyrir íslenskt viðskiptalíf, en kaup sem þessi eru mikil viðurkenning á íslensku hugviti sem og nýsköpunarstarfsemi,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Íslenska fyrirtækið Greenqloud var stofnað árið 2010 af Eiríki Hrafnssyni og Tryggva Lárussyni og var fyrsta fyrirtæki í heimi til þess að bjóða upp á skýjaþjónustu sem eingöngu var rekin á endurnýjanlegri orku. Er Jónsi Stefánsson, forstjóri Greenqloud, var ráðinn til fyrirtækisins í mars 2014 tók við mikil breyting á áherslum fyrirtækisins þar sem megináhersla var lögð á að þróa Qstack; sérhannaða hugbúnaðarlausn sem getur á auðveldan hátt stýrt skýjalausnum og tölvuþjónum fyrirtækja.

Í dag eru starfsmenn fyrirtækisins 42 talsins, af hinum ýmsu þjóðernum, en með nýjum áherslum NetApp Iceland og miklum vaxtartækifærum sem þeim fylgja mun fyrirtækið bæta við sig starfsmönnum á næstu vikum og mánuðum. Uppbygging starfseminnar mun að mestu leyti fara fram á skrifstofu fyrirtækisins í Reykjavík, en einnig á skrifstofu þess í Seattle, Bandaríkjunum.

„Við erum virkilega stolt af þessum árangri sem kemur til vegna ótrúlegrar þrautseigju og dugnaðar starfsmanna þar sem hver og einn þeirra spilaði ákveðið lykilhlutverk. Ég gæti ekki verið stoltari af mínu fólki sem hefur lagt allt sitt fram til að gera þetta að veruleika. Það er einkar ánægjulegt fyrir okkur og í raun allan tæknigeirann á Íslandi að NetApp hefur sett fram mjög metnaðarfulla uppbyggingaráætlun fyrir starfsemina á Íslandi. NetApp er virkilega áhugavert fyrirtæki og hefur ítrekað verið valið eitt besta fyrirtæki Bandaríkjanna til að vinna fyrir, að sjálfsögðu verður engin undantekning þar á í starfsemi þess hér á Íslandi.” segir Jónsi Stefánsson, forstjóri Greenqloud við tilefnið.

NetApp, Inc. var stofnað árið 1992 en hefur verið skráð sem Fortune 500 fyrirtæki frá árinu 2012, sem gerir það að einu stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna fimmta árið í röð. Höfuðstöðvar þess eru í Sunnyvale, Kaliforníu, en fyrirtækið sérhæfir sig í geymslukerfum og utanumhaldi gagnavera ásamt því að vera leiðandi og í mikilli sókn þegar kemur að hybrid skýjaþjónustu.