Nettóhagnaður Alfesca nam nam 22,4 milljónum evra eða um tveir milljarða króna á árinu en það er aukning um 87% frá sama tíma fyrir ári. Fjárhagsárið er frá júlí til júní.

Sala jókst um 11% á milli ára en hún nam 616,9 milljónum evra eða um 54 milljarðar króna.

EBITDA hagnaður jókst um 23% á milli ára og nam 53,9 milljónum evra eða 4,7 milljarðar króna.

Eiginfjárhlutfall er 44,2%.