Neytendastofa hefur lagt á stjórnvaldssekt á eina golfverslun vegna verðmerkinga í versluninni.

Verðmerkingareftirlit Neytendastofu fór í golfverslanir á höfuðborgarsvæðinu í nóvember s.l. þar sem stofnunin skoðaði verðmerkingar í verslun auk þess sem verðmerkingar og upplýsingar um fyrirtækið voru skoðaðar á vefsíðum.

Fyrirmælum var beint til tveggja verslana að koma verðmerkingum í betra horf. Þar sem Golfbúðin, Hafnarfirði, fylgdi ekki fyrirmælum Neytendastofu innan tilskilins frests hefur stofnunin nú lagt 50.000 kr. stjórnvaldssekt á verslunina.