Neytendastofa hefur í kjölfar eftirlits með verðmerkingum á veitingastöðum í og við miðbæ Reykjavíkur sektað níu veitingastaði vegna ástands verðmerkinga hjá þeim.

Veitingastöðum ber samkvæmt reglugerðum Neytendastofu að hafa ávallt matseðil með verðskrá við inngöngudyr og hafa skal samhliða upplýsingum um verð drykkja magn þeirra.

Gerðar voru athugasemdir við ástand verðmerkinga á meirihluta þeirra veitingastaða sem til skoðunar voru eftir fyrri heimsókn Neytendastofu. Sérstaklega mikið var um að það vantaði upplýsingar um magnstærðir í upplýsingum um drykkjarföng.

Þeir veitingastaðir sem komu ekki verðmerkingum í viðunandi horf samkvæmt fyrirmælum Neytendastofu hafa nú verið sektaðir um 50 þúsund krónur hver.

Veitingastaðirnir sem um ræðir eru Cafe Retro, Asía, Prikið, Lebowski Bar, veitingastaðurinn Kol, Hressingarskálinn, Dillon Whiskey bar, Chuck Norris grill og Casa Grande.