Nomura Holdings Inc. hyggst selja hluti í Standard Chartered Plc. að andvirði 500 milljónir dala. Þetta kemur fram á vef Bloomberg Markets.
Um er að ræða allt að 52,1 milljón hluti, eða um 1,6% af útistandandi bréfum í Standard Chartered.
Gengi bréfanna hefur hækkað um ríflega 31% á síðustu 12 mánuðum.