Ríkissjóður hefur keypt til baka eigin skuldabréf að nafnvirði 876,9 milljónir dollara í skuldabréfaflokknum “ICELAND 5.875%“ sem eru á gjalddaga 2022. Við aðgerðina minnkar gjaldeyrisforði Seðlabankans um samsvarandi fjárhæð, að því er kemur fram í frétt fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Þann 29. mars síðastliðin bauðst ríkissjóður til að kaupa alla útistandandi fjárhæð eigin skuldabréfa sem gefin voru út árið 2012 og voru á gjalddaga í mái 2022. Stóð útboðið til 4. apríl. Heildarnafnverð útgáfunnar nam 1.000 milljónum dollara.

Uppkaupin eru liður í lausafjár- og skuldastýringu ríkissjóðs. Ríkissjóður greiddi fyrir bréfin með erlendum innstæðum Seðlabanka Íslands.