Nótt Thorberg hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Marel á Íslandi. Staðan er ný en framkvæmdastjóri er ábyrgur fyrir starfsemi Marel á Íslandi. Nótt starfaði frá því að hún hóf störf hjá Marel 2012 sem markaðsstjóri þangað til hún fór í fæðingarorlof.

Nótt starfaði áður hjá Samskipum frá árinu 2004 en hún er með mastersgráðu í markaðsmálum frá University of Strathclyde í Skotlandi auk þess að hafa lokið tveimur diplómagráðum á vegum Chartered Institute of Marketing. Jafnframt er hún menntuð í myndlist og með leiðsögupróf. Nótt og sambýlismaður hennar Sigurjón H. Ingólfsson eiga saman tvö börn, Óttu og Tíma.