Ný stjórn var kosin á aðalfundi Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK) sem haldinn var hjá Samtökum iðnaðarins fimmtudaginn 16. nóvember síðastliðinn.

Nýja stjórnin er skipuð sem hér segir:

  • Kristinn Þórðarson hjá True North sem einnig er formaður stjórnar
  • Guðrún Edda Þórhannesdóttir hjá Kvikmyndafélaginu Hughrif sem er varaformaður
  • Lilja Ósk Sigurðardóttir hjá Pegasus
  • Guðbergur Davíðsson hjá Ljósop
  • Hilmar Sigurðsson hjá Saga Film

Varamenn í stjórn eru svo:

  • Júlíus Kemp hjá Kvikmyndafélagi Íslands
  • Hlín Jóhannesdóttir hjá Vintage Pictures.