Nýjasta vél WOW air lenti rétt í þessu á Keflavíkurflugvelli en um er að ræða glænýja Airbus A321ceo og tók hún hringflug yfir Reykjavík í hádeginu. Flugvélin kemur beint frá verksmiðju Airbus í Hamborg. Á Facebook vef Airbus verksmiðjunnar má svo einnig sjá nýja A330neo vél félagsins þegar hún er nýkomin úr málun.

Vélin sem er ný komin til landsins, ber skráningarnúmerið TF-DOG en með heitinu heldur WOW air áfram að vísa til fjölskyldunnar enda er hundurinn jafnan sagður besti vinur mannsins og ómissandi á mörgum heimilum segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Í vélinni eru 208 sæti og og þar af átta svokölluð „Big Seat“ sem eru breiðari sæti með meira sætabili. Vélin kemur til með að fljúga innan Evrópu og til Bandaríkjanna. Þetta er nítjánda vél WOW air en fyrir lok árs 2018 mun floti WOW air samanstanda af 24 nýjum Airbus flugvélum.

„Við tökum spennt á móti þessari nýju viðbót í flota WOW air,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air. „Það er ánægjulegt að geta boðið farþegum okkar upp á nýjasta flugflotann á Íslandi og á sama tíma haldið áfram að lækka flugverð.“

Ný A321ceo vél Wow tók hringflug yfir Reykjavík þegar hún kom til landsins 24. apríl.
Ný A321ceo vél Wow tók hringflug yfir Reykjavík þegar hún kom til landsins 24. apríl.
© Aðsend mynd (AÐSEND)