Nýherji og Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) hafa ákveðið að vinna saman að þekkingar- og fræðslumálum. FKA mun í haust og vetur halda fræðsluerindi að hluta hjá Nýherja þar sem áhersla verður lögð á nýsköpunar- og frumkvöðlastarfsemi og viðskiptatengsl fyrir konur í atvinnurekstri. Þetta kemur fram í frétt á vef Nýherja .

Í fréttinni segir Dröfn Guðmundsdóttir,  mannauðsstjóri Nýherja, mannauð vera einn af grunnstoðum Nýherja en þar starfar vaxandi hópur kvenna. Uppbygging tækniþekkingar er sameiginlegt hagsmunamál og því leggjum við áherslu á efla faglega og persónulega hæfni. Samstarfið við FKA fellur vel að stefnu Nýherja í þessum málum um leið og það er mikill akkur fyrir félagið að tengjast starfsemi sem hefur innan vébanda margar konur sem búa yfir yfirgripsmikilli stjórnurnareynslu úr atvinnulífinu.

Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri FKA, segir gildi FKA vera meðal annars framsækni og kunnátta og því falli samstarfið vel að þeim markmiðum sem þær setja sér. Hulda segist hlakka til að eiga ánægjulegt samstarf við vaxandi upplýsingatæknifyrirtæki sem hefur einsett sér að fylgja góðum stjórnarháttum þar sem einn þátturinn er að huga að jafnara kynjahlutfalli.