Tveir nýir framboðslistar hafa verið kynntir til sögunnar í Garðabæ og Hafnarfirði, í þeim fyrrnefnda munu fjölmargir flokkar leiða saman einn lista eins og Viðskiptablaðið hefur sagt frá, en Miðflokkurinn býður þó fram sjálfstætt í bænum. Sá flokkur hefur kynnt lista sinn fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði.
Sara Dögg Svanhildardóttir er oddiviti Garðabæjarlistans og leiðir listann sem býður fram í Garðabæ fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sara Dögg er fyrrum skólastjóri við grunnskóla Hjallastefnunnar til margra ára. Í dag er hún ein af stofnendum og stjórnendum Arnarskóla ses, sérskóla fyrir börn með þroskafrávik.
Jafnframt hefur almennur félagsfundur Miðflokksins í Hafnarfirði samþykkt tillögu uppstillinganefndar um framboðslista Miðflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði en þar verður Sigurður Þ. Ragnarsson veður- og jarðvísindamaður oddviti en í öðru sæti er Bjarney Grendal Jóhannesdóttir grunnskólakennari. Sigurður hefur oft gengið undir gælunafninu Siggi Stormur frá því hann var í veðurfréttum.
Framboðslisti Garðabæjarlistans í Garðabæ:
- Sara Dögg Svanhildardóttir Stjórnandi
- Ingvar Arnarson Framhaldsskólakennari
- Harpa Þorsteinsdóttir Lýðheilsufræðingur
- Halldór Jörgensson Tölvunarfræðingur
- Valborg Ösp Á Warén Stjórnmálafræðingur
- Guðjón Pétur Lýðsson Knattspyrnumaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir Málfræðingur
- Baldur Svavarsson Arkitekt
- Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir Mannauðsráðgjafi
- Hannes Ingi Geirsson Grunnskólakennari
- Anna Guðrún Hugadóttir Frv. Starfs og námsráðgjafi
- Guðlaugur Kristmundsson Verkefnastjóri
- Guðrún Elín Herbertsdóttir Viðskiptafræðingur/bæjarfulltrúi
- Tómas Viðar Sverrisson læknanemi
- Sólveig Guðrún Geirsdóttir félagsmiðstöðvarstarfsmaður
- Dagur Snær Stefánsson handboltamaður
- Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir Fyrrv. Skólastjóri tónlistarskólans á Álftanesi
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson Stjórnmálafræðingur
- Fanney Hanna Valgarðsdóttir Þroskaþjálfi
- Snævar Sigurðsson Erfðafræðingur
- Erna Aradóttir Frv. Leikskólastjóri
- Steinþór Einarsson Bæjarfulltrúi
Framboðslisti Miðflokksins í Hafnarfirði:
- Sigurður Þ. Ragnarsson Náttúruvísindamaður
- Bjarney Grendal Jóhannesdóttir Grunnskólakennari
- Jónas Henning Fjárfestir
- Gísli Sveinbergsson Málarameistari
- Arnhildur Ásdís Kolbeins Viðskiptafræðingur
- Elínbjörg Ingólfsdóttir Öryggisvörður
- Ingvar Sigurðsson Framkvæmdastjóri
- Magnús Pálsson Málarameistari
- Sævar Gíslason Iðnfræðingur
- Ásdís Gunnarsdóttir Sjúkraliði
- Davíð Gígja Sjómaður
- Bjarni Bergþór Eiríksson Sjómaður
- Sigurður F. Kristjánsson Kjötiðnaðarmaður
- Haraldur J Baldursson Véltæknifræðingur
- Skúli Alexandersson Bílstjóri
- Rósalind Guðmundsdóttir Viðskiptafræðingur
- Árni Guðbjartsson Fv. baadermaður
- Guðmundur Snorri Sigurðsson Bifvélavirkjameistari
- Tómas Sigurðsson Rekstrarstjóri
- Árni Þórður Sigurðarson Tollvörður
- Kristinn Jónsson Skrifstofumaður
- Nanna Hálfdánardóttir Frumkvöðull