Angela Ahrendts, framkvæmdastjóri smásölusviðs Apple, hefur fengið rétt til að kaupa 113.334 hluti í félaginu á næstu fjórum árum. Verðmæti kaupréttanna nemur um 68 milljónum dala, jafnvirði tæpra 7,6 milljarða íslenskra króna. Bloomberg-fréttaveitan segir samninginn í samræmi við þá stefnu stjórnar Apple að gera vel við lykilstjórnendur.

Gengi hlutabréfa Apple stendur í rétt tæpum 601 dal á hlut.

Ahrendts var áður forstjóri Burberry Group en fór yfir til Apple í október í fyrrahaust. Hún er eina konan í 10 manna framkvæmdastjórn Apple.