Karl Frímannsson hefur verið ráðinn tímabundið sem aðstoðarmaður Kristján Þórs Júlíussonar, mennta- og menningarmálaráðherra, í fjarveru Ingu Hrefnu Sveinbjarnardóttur sem er í fæðingarorlofi. Karl hefur reynslu bæði úr stjórnsýslu- og menntakerfinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Hann starfaði hjá Akureyrarbæ, fyrst sem fræðslustjóri og síðar þróunarstjóri en áður var hann skólastjóri Hrafnagilsskóla á Akureyri í þrettán ár. Árin 2014 til 2016 gegndi Karl starfi sveitarstjóra Eyjafjarðarsveitar og frá árinu 2016 hefur hann unnið sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi á sviði menntamála. Karl hefur sinnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir félög og stofnanir, m.a. sat hann í stjórn Leikfélags Akureyrar 2002 til 2008 og var stjórnarformaður Hofs menningarfélags frá 2008 til 2012.

Karl lauk meistaraprófi í stjórnun menntastofnana frá Háskólanum á Akureyri árið 2010 en áður lauk hann prófi í íþróttafræðum við Íþróttaháskóla Noregs árið 1992. Hann er kvæntur Bryndísi Björgu Þórhallsdóttur og eiga þau þrjá syni.