Gauti Geirsson hefur verið ráðinn sem aðstoðarmaður utanríkisráðherra, Gunnars Braga Sveinssonar.

Gauti verður í hálfu starfi, en hann hóf störf í dag, 8. febrúar.

Gauti er 22 ára og leggur stund á rekstrarverkfræði í Háskólanum í Reykjavík.

Hann hefur starfað sem háseti og vélstjóri á togara og farþegaskipum.