GAMMA Global Invest er nýr fjárfestingarsjóður GAMMA Capital Management sem hefur heimild til fjárfestinga erlendis. Sjóðurinn er opinn almennum fjárfestum og stofnanafjárfestum sem vilja auka vægi erlendra eigna í eignasöfnum sínum, draga úr áhættu og fá jafna ávöxtun. Sjóðurinn fjárfestir í dreifðum eignasöfnum og sjóðum þar sem undirliggjandi eignir geta meðal annars verið hlutabréf, skuldabréf, fasteignir og sérhæfðar fjárfestingar auk þess að hafa heimild til beinna fjárfestinga. Þetta segir í tilkynningu.

„Aðgangur að víðtækri þekkingu og fjölbreyttu vöruúrvali erlendra samstarfsaðila GAMMA, á borð við sjóðastýringarfyrirtækið PIMCO og alþjóðlega eignastýringarfyrirtækið GAM, hefur nýst vel í undirbúningi að stofnun GAMMA Global Invest og mun skila sjóðsfélögum bættri eignadreifingu.

Sjóðurinn hefur starfsemi í kjölfar samþykktar Alþingis á nýjum lögum um gjaldeyrisviðskipti. Í lögunum eru heimildir Íslendinga til að dreifa áhættu út fyrir íslenska hagkerfið rýmkaðar verulega. Með samþykkt laganna eru tekin langþráð skref í rýmkun gjaldeyrishafta sem ber að fagna, en undirbúningur að stofnun GAMMA Global Invest hefur staðið yfir í tvö ár,“ segir í tilkynningunni.

Síðustu misseri hefur GAMMA skoðað og undirbúið fjárfestingartækifæri erlendis fyrir viðskiptavini sína, einkum í Bretlandi, og hefur að auki kynnt erlendum viðskiptavinum og fjárfestum tækifæri til fjárfestinga á Íslandi.

Hófu starfsemi í London

GAMMA hóf starfsemi í London 2015, fyrst íslenskra fjármálafyrirtækja, eftir tilkynningu um fyrirhugað afnám hafta og rekur þar skrifstofu með sjálfstætt starfsleyfi. Í London hefur starfseminni verið fagnað og GAMMA afar vel tekið. Í byrjun ágúst síðastliðnum urðu svo tímamót þegar GAMMA fékk sjálfstætt starfsleyfi frá fjármálaeftirlitinu í Bretlandi.

Þegar tilkynnt var um opnun skrifstofunnar í London í júní 2015 í boðaði Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA, að við afléttingu hafta yrðu jafnframt í boði sérhæfði sjóðir sem eingöngu myndu fjárfesta á erlendum mörkuðum.

Eykur möguleika til fjárfestinga erlendis

GAMMA Global Invest eykur möguleika sparifjáreigenda til fjárfestinga erlendis. Að auki er í rekstri hjá GAMMA fjárfestingarsjóðurinn Total Return Fund, sem einnig hefur heimildir til fjárfestinga erlendis.

Markmið GAMMA er að veita viðskiptavinum á Íslandi alhliða þjónustu þegar kemur að fjárfestingum erlendis, allt frá stofnun vörslureikninga til beinna fjárfestinga í sjóðum hjá virtustu sjóðastýringarfyrirtækjum í heimi, auk þess að veita viðskiptavinum GAMMA erlendis þjónustu þegar kemur að fjárfestingum á Íslandi“ segir í tilkynningunni.