Advania tilkynnti fyrir stuttu að það hefði ráðið nýjan forstjóra en Ægir Már Þórisson tekur við að Gesti G. Gestssyni. Breytingarnar voru kynntar á fundi með starfsmönnum í morgun.

Gestur mun einbeita sér að starfi forstjóra Advania Norden til að fylgja eftir auknum vexti félagsins á Norðurlöndum. Starfsemi Advania hefur aukist mikið á Norðurlöndunum á síðustu árum en fyrirtækið er með starfsemi í Danmörku, Noregi og Svíþjóð og er stefna eigenda að efla starfsemina þar enn frekar.

Ægir hefur starfað hjá Advania frá árinu 2011 og hefur síðustu tvö ár verið framkvæmdastjóri mannauðs- og markaðsmála. Hann er menntaður sem vinnusálfræðingur en hann hefur áður starfað sem ráðgjafi, mannauðsstjóri og framkvæmdastjóri hjá Capacent.

Í tilkynningu til fjölmiðla segir Ægir Már að „Það eru spennandi tímar framundan hjá Advania á Íslandi og mikil tækifæri sem blasa við. Með þessari breytingu ætlum við að skerpa áherslur okkar á innanlandsmarkaði.“