Elín Helga Sveinbjörnsdóttir hefur tekið við sem annar af tveimur framkvæmdastjórum auglýsingastofunnar Hvíta hússins ásamt Gísla S. Brynjólfssyni. Elín Helga verður framkvæmdastjóri viðskiptastýringar og Gísli framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Gunnar Þór Árnason verður áfram hönnunarstjóri og Kristinn R. Árnason verður fjármálastjóri. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Þar segir að undanfarnir átján mánuðir hafi verið „tími breytinga og sjálfsskoðunar hjá Hvíta húsinu.“ Stjórnendur Hvíta hússins fóru í stjórnendamat hjá Attentus og samhliða því fór fyrirtækið  í gegnum jafnlaunavottunarferli hjá VR. Þessi skipulagsbreyting, sem og ráðning nýs framkvæmdastjóra, kemur í kjölfar þessarar vinnu Hvíta hússins og er til þess fallin  að skerpa á verkaskiptingu og ábyrgð stjórnenda.

„Hvíta húsið stendur nú sterkar en nokkru sinni fyrr. Sú vinna sem við höfum farið í gegnum með starfsfólki hefur gefið okkur mikið og mun tryggja að við skilum viðskiptavinum okkar enn betri árangri en áður,“ segir Elín Helga. „Ég er mjög spennt fyrir því verkefni að leiða stofuna á þeim spennandi tímum sem framundan eru.“

Elín Helga hefur starfað hjá Hvíta húsinu í tólf ár sem einn af aðalráðgjöfum stofunnar. Hún er jafnframt einn af eigendum stofunnar og núverandi stjórnarformaður SÍA, Sambands íslenskra auglýsingastofa.

„Við erum mjög stolt af þeirri vinnu sem við höfum gengið í gegnum. Við höfum litið á öll okkar störf með gagnrýnum augum og lagt áherslu á að gera úrbætur þar sem þess hefur verið þörf,“ segir Gísli S. Brynjólfsson. „Jafnlaunavottunin var mikilvægur áfangi fyrir okkur. Til að fylgja henni eftir skiptir máli að framkvæmdastjórar stofunnar séu nú af báðum kynjum. Elín Helga hefur gríðarlega reynslu úr auglýsingabransanum sem mun nýtast vel við að leiða hönnunarsviðið og viðskiptastýringuna.“