Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra hefur ráðið Þorstein Fr. Sigurðsson sem nýjan framkvæmdarstjóra.

Þorsteinn er rekstrarhagfræðingur, sem hefur einnig lokið við meistaragráðu í lögfræði.

Hefur hann mikla reynslu af félagsmálum og rekstri félagssamtaka. Hann hefur áður gengt starfi verkefnastjóra hjá Sjálfsbjargarheimilinu. Einnig má geta að Þorsteinn starfaði sem framkvæmdarstjóri STARF - vinnumiðlun og ráðgjöf á árunum 2012-2015. Hann var enn fremur framkvæmdarstjóri Stjórnlagaráðs.

Tryggvi Friðjónsson, sem hefur gengt starfi framkvæmdarstjóra samhliða starfi framkvæmdarstjóra Sjálfsbjargarheimilisins frá 2011, ætlar alfarið að leggja áherslu á hið síðarnefnda.