Hilmar Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Special Tours ehf. og hefur hann þegar tekið til starfa.

Hilmar stofnaði fyrirtækið Hvalalíf / Life of Whales ásamt öðrum árið 2007 en fyrirtækið var sameinað Special Tours ehf árið 2012. Hilmar hefur starfað sem framkvæmdastjóri og fjármálastjóri á undanförnum árum, s.s. hjá Sagafilm, RVX og Sambíóunum. Hilmar lauk Cand.oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2001.

Hjörtur Hinriksson lætur af daglegum störfum sem framkvæmdastjóri en mun áfram sinna ýmsum verkefnum fyrir félagið sem eigandi þess og stjórnarmaður.