Ferskfisktogarinn Kaldbakur EA, sem smíðaður er fyrir Útgerðarfélag Akureyringa í Tyrklandi, lagði af stað heimleiðis í síðustu viku, að því er fram kemur á vefsíðu Þorgeirs Baldurssonar ljósmyndara .

Hér er um glæsilegt og fullkomið skip að ræða. Reiknað er með því að siglingin til heimahafnar á Akureyri taki um hálfan mánuð.