Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, og Jón Tryggvi Helgason, framkvæmdastjóri ÍSMAR, undirrituðu á dögunum samning um kaup Landhelgisgæslunnar á nýjum mælingabúnaði fyrir sjómælingaskipið Baldur.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.

Búnaðurinn sem um ræðir er annars vegar fjölgeislamælir af gerðinni Teledyne Reson SeaBat T50 sem ætlaður er til dýptarmælinga fyrir sjókortagerð og hins vegar jarðlagamælir af gerðinni Innomar SES-2000 sem ætlaður er til greiningar á jarðlögum hafsbotnsins.

Að undangengnu útboði Ríkiskaupa var gengið til samninga við ÍSMAR sem sérhæfir sig í sölu tækjabúnaðar til land- og sjómælinga. Stefnt er að því að nýju mælarnir verði tilbúnir til notkunar um borð í Baldri í lok febrúar.

Nýi fjölgeislamælirinn leysir af hólmi eldri mæli sem settur var undir Baldur árið 2005. Mælirinn er af nýrri kynslóð tækja sem er bæði nákvæmari og betri. Hann nær niður á mun meira dýpi en sá gamli og heldur fullri þekjuvídd niður á meira dýpi. Afköst verða því meiri í dýpra vatni. Þá hefur nýi mælirinn mjög nákvæma upplausn og eru möguleikar til að finna og greina hluti á hafsbotni því margfalt betri. Það gegnir veigamiklu hlutverki við hefðbundnar dýptarmælingar en ekki síður við leit á hafsbotni.

Jarðlagamælir er hins vegar nýr búnaður um borð í Baldri og er hann keyptur vegna aðkomu Landhelgisgæslunnar að átaksverkefni atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins um kortlagningu hafsbotnsins næstu 10-15 ár í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun. Með jarðlagamæli er m.a. hægt að mæla þykkt setlaga á hafsbotni og eru það upplýsingar sem nýtast m.a. jarðvísindamönnum.