Michael Mann hefur verið skipaður sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, að því er kemur fram á vefsíðunni Politico, sem hefur komist yfir lista yfir nýja sendiherra sambandsins.

Mann hefur verið deildarstjóri ytra samskiptasviðs hjá utanríkisþjónustu Evrópusambandsins.

Mann er með gráðu í þýsku og stjórnmálafræði frá háskólanum í Edinborg og hefur unnið hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins frá árinu 2011.