Gert er ráð fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og innviða fyrir allt að 12.600 manns þegar hverfi við Elliðaárvog og Ártúnshöfða verður að fullu endurgert. Fjöldi íbúa gæti orðið á bilinu 5.100 til 5.600. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg . Kynningarfundur um skipulag og uppbyggingu hverfisins verður haldinn á morgun.

Haft er eftir Birni Guðbrandssyni hjá Arkís að uppbygging Elliðaárvogs-Ártúnshöfða búi yfir fjölmörgum eiginleikum vistvænnar byggðar, enda hafi áherslur í hönnun verið að skapa vistvænt borgarhverfi með fólk í fyrirrúmi. Rammaskipulag fyrir hverfið var unnið í samstarfi Arkís, Landslags og Verkís.

„Að stærstum hluta er um að ræða land sem þegar hefur verið raskað; athafnasvæði sem gengur í gegnum endurnýjun og umbreytist í blandaða byggð,“ er jafnframt haft eftir Birni. Hann tekur einnig fram að lögð verði áhersla á að skapa hverfi sem er þétt og fjölbreytt og sem bjóði upp á þjónustu og atvinnumöguleika innan hverfis og er tengt hágæða almenningssamgöngukerfi. „Uppbyggingin mun tengjast nýrri borgarlínu á samgönguás frá vestri til austurs,“ segir í tilkynningunni.