Húsnæðis- og velferðarráðherra, Eygló Harðardóttir, hefur kynnt frumvarp til breytinga á lögum nr. 44/1998 um húsnæðismál sem snýr framtíðarskipan húsnæðismála. Í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir nokkrum breytingum á starfsemi Íbúðalánasjóðs, að því er fram kemur í tilkynningu til kauphallarinnar. Þar segir að breytingarnar séu helstar eftirfarandi:

  • Skerpt sé á hlutverki sjóðsins í stefnumótun og áætlanagerð í húsnæðismálum.
  • Breytingar á ákvæðum um hlutverk sjóðsins til samræmis við ný lög um almennar íbúðir vegna veitingu stofnframlaga.
  • Dregið sé úr heimildum sjóðsins til að veita lán til einstaklinga til kaupa á fasteignum til eigin nota. Þetta sé svipað fyrirkomulag og hjá Husbanken í Noregi og ARA í Finnlandi.
  • Kveðið sé á um bókhaldslegan aðskilnað milli eldra lánasafns og þeirra verkefna sem sjóðurinn kemur til með að hafa verði frumvarpið að lögum.

Sjóðnum er með lögum nr. 52/2016 um almennar íbúðir falið umsjá með veitingu stofnframlaga og eftirlit með þeim sem fengið hafa slík framlög. Miða breytingarnar að því að ákvæði um sjóðinn endurspegli þetta hlutverk. Jafnframt eru breytingar á ákvæðum um tekjur sjóðsins en gert er ráð fyrir að stofnframlög verði fjármögnuð með framlögum úr ríkissjóði í samræmi við fjárlög hverju sinni.

Dregið úr útlánaheimildum sjóðsins

Heimildir sjóðsins til lánveitinga verða samkvæmt frumvarpinu takmarkaðar við sértæk lán á samfélagslegum forsendum eða vegna markaðsbrests. Lán til einstaklinga verða einskorðuð við þá sem ekki eiga kost á fasteignalánum á ásættanlegum kjörum hjá öðrum lánastofnunum svo sem vegna staðsetningar fasteignarinnar eða af öðrum ástæðum. Núgildandi ákvæði um hámarkslán og hámarksverð fasteigna mun haldast óbreytt og sama máli gegnir um greiðslugetu lántaka og veðhæfi fasteignar.

Sjóðurinn mun áfram lána til leigufélaga sem rekin eru án hagnaðarsjónarmiða og til sveitarfélaga s.s. vegna húsnæðis fyrir fatlað fólk, aldraðra, öryrkja, námsmenn og vegna hjúkrunarheimila.

Í tilkynningunni segir að lokum að til að takmarka áhættu sjóðsins og ríkissjóðs og tryggja samræmi við ríkisstyrkjareglur EES-samningsins sé kveðið á um skýran bókhaldslegan aðskilnað milli eldra lánasafns og skuldbindinga og nýrra lána og stofnframlaga.