Nýverið tók Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna fyrstu skóflustungu að nýju hátæknivöruhúsi sem rísa mun að Korngörðum 3 í Sundahöfn að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Það er Dalsnes ehf. sem byggir húsnæðið sem verður eitt fullkomnasta vöruhús landsins og mun það meðal annars hýsa starfsemi Innnes ehf og fleiri fyrirtækja. Starfsemi Innnes verður þannig sameinuð undir eitt þak, en starfsemin er á fjórum stöðum í dag.

Húsnæðið er með 3 millipöllum en í húsinu verða frysti- og kæligeymslur ásamt þurrvörulager. Í húsnæðinu verður komið fyrir sjálfvirkum vöruhúsabúnaði, sem er fyrsti sinnar tegundar á Íslandi og mun allri frysti- og þurrvöru sem hýst er í vörugeymslunni verða stýrt með honum.

„Nýja húsnæðið mun auðvelda Innnes ehf., og þeim fyrirtækjum er nýta vöruhúsið, að uppfylla skuldbindingar sínar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda en staðsetning hússins mun auðvelda vörustreymi til og frá húsinu í framtíðinni til muna, þar sem skipafélög, flutningsfélög og stærstu viðskiptavinir fyrirtækjanna eru í næsta nágrenni við nýja húsnæðið.  Gera má því ráð fyrir að verulegum sparnaði í akstri á ári hverju með þessari nýju staðsetningu.  Í hönnun og byggingu vöruhússins verður lögð áhersla á umhverfisþætti, hagkvæmni og betri þjónustu við viðskiptavini fyrirtækjanna,“ kemur fram í tilkynningunni.