Framkvæmdir eru hafnar við nýtt hótel í Vík í Mýrdal sem áformað er að opni í lok júní næstkomandi. Hótelið mun bera nafnið Hótel Kría og þar verða 72 herbergi ásamt veitingasal,.

Hótel Kría er að hluta byggt úr einingum frá Moelven í Noregi sem er eitt stærsta húseiningafyrirtæki í Evrópu, en framleiðsla Moelven hefur gefið góða raun við íslenskar aðstæður. Miðrými hótelsins, m.a.  gestamóttaka og veitingasalur, er byggt úr forsteyptum einingum.

Aðstandendur að byggingu og rekstri Hótel Kríu í Vík í Mýrdal eru þeir Vilhjálmur Sigurðsson, Hjálmar Pétursson og Sigurður Elías Guðmundson.

Vilhjálmur og Hjálmar eru eigendur og stjórnendur ALP hf. til magra ára, en ALP hf rekur ma. bílaleigur undir merkjum AVIS og Budget. Auk þess eru þeir eignar- og rekstraraðilar að Hótel  Laxá í Mývatnsveit. Sigurður Elías Guðmundson er eigandi Icelandair Hótels Vík sem og eigandi og rekstraraðili Víkurskála, veitingastaðarins Icecave og Lavecafé.

„Við sjáum mik­il tæki­færi í upp­bygg­ingu hótels á Vík í Mýrdal enda fjölfarinn ferðamannastaður sem skartar ægifagurri náttúru,” er haft eftir Vilhjálmi í tilkynningu. „Það er mikil eftirspurn er eftir gistingu á svæðinu og við höfum þegar fengið fjölda fyrirspurna um gistingu hjá Hótel Kríu þó formleg sala og markaðssetning sé ekki hafin. Það verður opnað fyrir bókanir á næstu dögum og við eigum von á að það verði mikil eftirspurn strax á fyrstu dögunum.”