Barack Obama hefur tilkynnt um framboð til forseta Bandaríkjanna árið 2012. Obama lýsti yfir að hann sækist eftir endurkjöri með myndbandi á heimasíðu sinni, barackobama.com . Þá var tölvupóstur sendur til stuðningsmanna hans.
Fjallað er um framboðið á erlendum miðlum í dag. Það kom fáum á óvart og er búist við að aðstoðarmenn Obama fylli út formlega pappíra um framboð á allra næstu vikum.